Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Breytingar á skóladagatali 2016-2017

21.06.2016
Breytingar á skóladagatali 2016-2017

Skólanefnd Garðabæjar hefur samþykkt ósk skólastjóra Álftanesskóla um breytingar á skóladagatali skólaársins 2016-2017.

Lagt var til að færa skipulagsdagana 16. september og 30. nóvember 2016 til þannig að þeir verði 17. og 18. nóvember. Með því skapast svigrúm til náms- og fræðsluferðar skólans til Englands.

Beiðni Álftanesskóla var samþykkt enda tryggir skólinn möguleika á gjaldfrjálsri vistun í tómstundaheimilinu Frístund fyrir þá sem þess óska á hefðbundnum skólatíma. 

Hér má sjá skóladagatalið 2016 - 2017

Til baka
English
Hafðu samband