Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Kærleiksverkefni Nemendafélagsins

05.12.2014
Kærleiksverkefni Nemendafélagsins

Nemendur skólans hafa styrkt ýmis málefni síðustu ár í staðinn fyrir að skiptast á jólagjöfum. Stjórn nemendafélagsins ákveður hverju sinni hvert styrkirnir fara en í ár var ákveðið að styrkja Fjölskylduhjálp Íslands. Þeir nemendur sem taka þátt í verkefninu hafa komið með pening í lokuðu og ómerktu umslagi til umsjónarkennara eða ritara. Stjórn nemendafélagsins mun svo sjá um að ganga frá söfnuninni í næstu viku og koma framlaginu til Fjölskylduhjálpar Íslands fyrir hönd nemenda Álftanesskóla.

Hér má sjá myndir frá kynningu Nemendafélagsins á Kærleiksverkefninu 2014.

Til baka
English
Hafðu samband